22. fundur
fjárlaganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 24. nóvember 2023 kl. 09:05


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 09:05
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:05
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 2. varaformaður, kl. 09:05
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:05
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:05
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:05
Kristrún Frostadóttir (KFrost), kl. 09:05
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 09:05
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:52
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:05

Jódís Skúladóttir tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2024 Kl. 09:05
Til fundarins kom Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra. Með henni komu Björn Þór Hermannsson og Tómas Brynjólfsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Ráðherra svaraði spurningum nefndarmanna um fjárlagafrumvarpið.

2) Önnur mál Kl. 10:34
Rætt var um breytt vinnulag á fundum en um það var engin ákvörðun tekin. Einnig var rætt um þá vinnu sem framundan er hjá nefndinni. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:52
Fundargerð 21. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:53